← Hylki 4 kg kolsýra fyrir fyrirtæki · verð án VSK

Þið sjáið um vatnið, við sjáum um kolsýruna.

Fullt 4 kg hylki inn, tómt hylki út. Fyrir vinnustaði sem eru nú þegar með sódavatnstæki, vatnsvél eða kolsýrðan krana og vilja sleppa við snattið.

Reikna notkun
Eða hringdu: 497 9900
4 kg kolsýruhylki frá Sódavatni og silfurlitaður kælir inni í skáp undir vaski
4 kgkolsýra í hverju hylki
um 540 Laf kolsýrðu vatni
0 ferðirfyrir ykkur að sækja áfyllingu
fullt inntómt út
Reiknivél

Hversu lengi endist eitt hylki?

Setjið inn grófa notkun og sjáið hvað eitt 4 kg hylki getur dugað lengi. Þetta þarf ekki að vera nákvæmt, bara nógu gott til að byrja.

Áætluð notkun63 L / viku
Eitt 4 kg hylki endistum 9 vikur
Áætluð þörf0,5 hylki / mán.

Miðað við að eitt 4 kg hylki gefi um 540 L af kolsýrðu vatni. Raunnotkun fer eftir vél, þrýstingi og hversu mikla kolsýru þið viljið.

Þetta er sáraeinfalt.

1

Sendið mynd

Mynd af núverandi hylki, vél eða krana segir okkur yfirleitt það sem þarf. Við biðjum um hana með SMS eftir að fyrirspurnin berst.

2

Við græjum tenginguna

Ef það vantar slöngu, tengi eða þrýstijafnara hjálpum við að koma því í lag.

3

Tómt verður fullt

Þegar hylkið tæmist skiptum við á tómu og fullu. Þið þurfið ekki að gera ferð úr þessu.