Tilbúin/n að prófa?
Kolsýruhylki heim að dyrum. Engin binding, engin fyrirhöfn.
Skrá í áskriftÞetta er ekkert flókið, þetta er bara sódavatn.
Þetta er nokkuð einfalt. Við skiptum á hylki við þig eins oft og þú kýst. Við sendum fullt hylki til þín og tökum við tóma hylkinu þínu. Til þess að einfalda þetta þá samælumst við um afhendingar og skilastað fyrirfram.
Við bjóðum upp á hylki sem passa í allar gerðir sódavatnstækja á markaðnum í dag. Meðal annars Mysoda, Sodastream og Aarke. Við erum með tvennskonar hylki, skrúfhylki og snarhylki, snarhylkin passa í Quick Connect tækin frá Sodastream.
Þú getur skilað öllum þínum tómu hylkjum til okkar og fengið þau endurgreidd. Gjaldið sem við greiðum fyrir tóm hylki er 1.900 kr.
Það skiptir ekki máli hvar þú keyptir hylkin upphaflega. Þau þurfa bara að vera eins og þau hylki sem við bjóðum upp á sem eru jafnframt þau sem eru algengust á markaðnum í dag. Þú getur fullvissað þig um það að hylkið þitt sé eins ef að það er með flötum botni.
Hjá okkur er enginn binditími og þú getur því sagt upp áskriftinni hvenær sem er. Þú færð sms fyrir hverja einustu afhendingu og getur seinkað henni ef þú þarft ekki áfyllingu. Þú getur alltaf sagt upp áskriftinni með því að senda tölvupóst á hallo@sodavatn.is
Við keyrum kolsýruhylkin sjálf út til þess að allt gangi smurt. Ef að þú ert ekki heima þá sækjum við tóma hylkið þitt og komum nýju fyrir á umsömdum stað þar sem örugt er að geyma hylkið þar til þú kemur heim. Í pöntunarferlinu hjá okkur tekur þú fram hvar þú munt skilja tóma hylkið eftir og hvar við eigum að skilja áfyllta hylkið eftir. Þetta tryggir það að við getum afhent þér hylkið þrátt fyrir að þú sért ekki heima.
Við sendum þér þrjú sms fyrir hverja afhendingu. Fyrsta smsið færðu kvöldið áður en að við komum, annað smsið kemur kl. 8 um morgunin áður en að við komum og það þriðja færðu þegar sendill leggur af stað og þá sérðu áætlaðan afhendingartíma.
Við tökum við hylkjum sem hægt er að fá frá öllum söluaðilum kolsýruhylkja á Íslandi í dag. Þú getur fullvissað þig um það að hylkið þitt sé eins ef að það er með flötum botni en ekki kúptum.
Þú getur meira að segja skilað fleiri en einu og fengið skilagjaldið borgað ef þú ert í áskrift.
Við tökum aðeins á móti þeim tómu kolsýruhylkjum sem ennþá eru í umferð á Íslandi og hægt er að skila fyrir gjald. Langflest hylki á Íslandi falla í þennan flokk en ef þú átt mjög gamalt kolsýrutæki þá er best að athuga hvort að hylkið sé með flatan botn. Ef svo er þá tökum við á móti því.
Kolsýruáfyllingar okkar eru íslensk framleiðsla, við fyllum á hylkin sjálf og hylkin eru í okkar eigu. Þau eru því í hringrás hér og aldrei send úr landi.