Kolsýruhylki í áskrift

Sódavatn án fyrirhafnar

Fullt kolsýruhylki heim að dyrum og tóma hylkið sótt. Þú þarft hvorki að panta, muna né bera.

Áfyllingin 2.990 kr. m/VSK. Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu. Engin binding. Sama verð frá upphafi.
Fyrsta sendingin

Ef þú átt ekki tómt hylki á móti bætist 1.900 kr. skilagjald við fyrstu sendinguna. Þú færð það til baka þegar þú skilar hylki. Eftir það kostar hver áfylling 2.990 kr.

Skrá í áskrift
Kolsýruhylki frá Sódavatni á eldhúsborði

Svona virkar þetta

1

Þú skráir þig

Þú velur gerð hylkis og hversu oft þú vilt fá áfyllingu. Sjálfgefið er á fjögurra vikna fresti.

2

Við komum með fullt hylki

Þú færð SMS daginn áður og aftur um morguninn með tímaglugga. Ef þú ert ekki heima setur þú tóma hylkið á skilastað.

3

Við tökum tóma hylkið

Þú skilur það eftir og við skiptum. Engin ferð í búðina.

Afhendingin

Þú veist alltaf hvenær við komum

  1. ☝️ Þú færð SMS fyrir hverja afhendinguDaginn áður og aftur um morguninn með áætluðum komutíma. Viltu fresta eða sleppa? Þú getur gert það á Mínum síðum fyrir miðnætti.
  2. ✌️ Við komum og skiptum 👋Ef þú ert ekki heima seturðu tóma hylkið á skilastað og við skiljum það fulla eftir á sama stað.
  3. 🤟 Sódaöryggi þitt er tryggt 🌈Þú færð staðfestingu þegar búið er að skipta og staðan uppfærist á Mínum síðum.
Skrá í áskrift
SSodavatn

Hæ, við komum með nýtt hylki á morgun. Komdu tóma hylkinu fyrir á skilastaðnum ef þú verður ekki heima. Þarftu að breyta afhendingunni? Gerðu það á þínum síðum fyrir miðnætti -> checkout.sodavatn.is/me

Góðan daginn, þú átt von á sendingu á milli 11:30 og 13:30

Hæ, fullt hylki er afhent. Minnum á mínar síður á checkout.sodavatn.is/me

Tvær gerðir af hylkjum

Tækið þitt tekur aðra hvora gerðina. Þú velur hana á greiðslusíðunni og getur breytt því síðar.

Skrúfhylki SkrúfhylkiFlatur botn, skrúfast í tækið. Algengasta gerðin.
Snarhylki SnarhylkiSmellt í tækið með snarfestingu.

Ertu ekki viss um hvora gerðina þú átt? Við hjálpum þér að velja

Fyrir vinnustaði og krana

4 kg hylki

Um 540 lítrar af kolsýrðu vatni í hverju hylki. Passar við sódavatnskrana og stærri vélar og kemst fyrir í skápnum undir vaskinum. Við komum með fullt hylki og tökum það tóma.

Fá tilboð í 4 kg hylki
4 kg kolsýruhylki frá Sódavatni og silfurlitaður JNOD kælir inni í skáp undir vaski

Gott að vita

  • Engin binding. Þú hættir eða gerir hlé hvenær sem er.
  • Sjálfgefið er áfylling á fjögurra vikna fresti. Þú breytir tíðninni hvenær sem er.
  • Ekki heima? Þú setur tóma hylkið á skilastað. Við sendum SMS daginn áður, um morguninn með tímaglugga og staðfestingu þegar búið er að skipta.
  • Skilagjaldið, 1.900 kr., færðu til baka þegar þú skilar hylki. Þetta gildir líka um tóm hylki frá öðrum ef þau eru með flötum botni.

Utan höfuðborgarsvæðisins? Hafðu samband og við segjum þér hvað er í boði þar sem þú býrð.

Byrjaðu í dag

Fyrsta sendingin kemur innan tveggja virkra daga. Engin binding, þú getur hætt hvenær sem er.

Skrá í áskrift · 2.990 kr.
Skrá í áskrift · 2.990 kr.